Canalis Inguinalis
Myndir
Síður sem Dagnir fílar
04.03.2007 18:59:47 / dagnir

Nýjustu tíðindi

Dagnir var að fá fregnir af því að Njálmundur Stálmundur væri efni í nýjustu bók Pæjans af Varsjá.  m.a. verður þar að finna einkaviðtal við æskuvin hans þar sem allt er látið flakka.


» 4 hafa sagt sína skoðun

03.03.2007 10:19:17 / dagnir

Gleðilegt nýtt ár!

Betra er seint en aldrei.

Dagnir hefur nú haft ýmislegt að gera síðustu mánuði og vegna alls þess annríkis hefur Canalis Inguinalis þurft að sitja á hakanum. Nýlegast er að nefna Lundúnaferð Dagnis þar sem innviðir breskra spítala og voru skoðaðir og skemmtiferð farinn í sjúkrabíl. Lengi vel var óvíst hvort Dagnir fengi að halda höfuðleðrinu en vegna snarræðis og fagmannlegra vinnubragða var því bjargað með tonnataki(superglue) frá húsverði spítalans. Færnibúðir læknanema leiddu síðar í ljós að auk höfuðleðursskaðans er Dagnir heppinn að halda sjóninni á vinstra auga þar sem augasteinninn er við það að detta úr, verst er að tonnatakið kláraðist á höfuðleðrið en límið frá Bónus ætti samt að halda í nokkra daga.

Dagni mun nú ekki leiðast næstu vikuna enda árshátíðarvika þar sem rúsínan í pylsuendanum er námsskeið í krullu. Gífurlega heillandi sport og kjörinn leið inn í helstu heldrimannaklúbba Evrópu.

Að lokum þakkar Dagnir stjórninni og öðrum óspilltum siðapostulum fyrir að bægja burt ólifnaðarlýðnum sem annars hefði skoðað landið okkar og eytt hér illa fengnu fé.
Einnig er Dagnir ánægður með að ríkið skuli hjálpa fátækum kjörbúðum landsins og auka hagnað þeirra um 7% í það minnsta.


» 1 hafa sagt sína skoðun

30.12.2006 19:48:51 / dagnir

jólslúður

Bekkurinn okkar er að lifna aftur við, sms-in frá Dóru DNA eru við það að fylla símann og Dagnir hefur ekki undan við að lesa þau. Er samt ekki bara leiðinlegt að vera að bera út svona slúður?
Dagnir fór að djamma í gær og var þunnur í fyrramálið.

» 3 hafa sagt sína skoðun

22.12.2006 06:17:21 / dagnir

Jólaglögg og naked partý

Jólaglögg læknanema fór fram með ótrúlega siðsamlegum hætti en það skýrist af því að eftirpartýin um víðan bæ voru svaðaleg og staðreyndir eru fyrir því að naked partýs hafi verið... meðal annars í stúdentagörðunum þar sem úr að neðan var þemað fyrir eftirpartýið... Helmingur af Dagni var á staðnum í stúdentagörðunum og þetta átti sér meða annars stað... n.b. ekki í tímaröð...

Jóhann... Jón, koddu með hann... koddu með hann... hættu þessu
Jóhann og Jón hentu frikka út... eða reyndu það... alveg þangað til friki bar þá ofurliði...
Harpa var fórnarlamb alls... þrátt fyrir að vera nakin í rúminu fyriri......xxxxxxxxxxx
Dagbjört dansaði á borðum á meðn allt þetta átti sér stað og sexy back með justin var á fóninum....
Kvöldið endaði á eftirfarndi veg....

» 1 hafa sagt sína skoðun

18.12.2006 08:30:27 / dagnir

Harðsperrur í maganum.

Til hamingju með að vera kominn í jólafrí 2.árs nemar (og hí á ykkur hin)

Síðasta laugardagskvöld hélt Dagnir upp á 41.árs afmæli sitt (auk þess að fagna í leiðinni próflokum) með partýi heima hjá Hörpu Dagsins. Spírabolla var í boði ónefnds lögfræðisonar og uppskrift Dagnis var óvenju góð (venjulega er bollan góð en þetta var of gott og einfalt til að vera satt). Skemmst er frá því að segja að partýið var mjög skemmtilegt og mjög lítið um slúður, utan einstaka three- og foresome tilboð. (nefna skal af gefnu tilefni að símasamband er í hægara lagi frá kúbu svo enn gæti eitthvað borist frá hinni alræmdu Slúðurdrottningu).

Í gær/áðan fór Dagnir auk fríðs föruneytis á Argentínu steikhús til að launa sér dugnað síðustu annar, og eftir 4 diska hver öðrum þéttsetnari (forréttur, kaldur aðalréttur, heitur aðalréttur og eftirréttur) var öllum rúllað á koníaksstofuna (við höfum sko sambönd ekki búast við að sjá stofuna fyrr en þið eruð allavega búinn með 6 ár). Þar tóku við poly-umgangar af mjög gömlu wisky og einn stór kúbverji tottaður. Kl. 2 þegar húsinu var lokað, þar sem föruneytið hafði klárað allar byrgðirnar af wisky og öðru áfengi, var haldið heim til Sleggjudómarans til að bera saman viskýið hans við það sem svolgrað hafði verið niður um kvöldið en það kláraðist ekki fyrr en klukkan var farinn að ganga 6 og tími til að fara heim á leið.
Nú liggur hinn ný-tvítugi hluti Dagnis, eftir að hafa verið vakinn með afmælissöng og ístertu(sem snéri maganum í stríðsástand), alveg við það að springa og í alvörunni með harðsperrur í maganum.
Svona er að lifa eins og kóngur í ríki sínu.
kv. Dagnir


p.s.
kann einhver teyjuæfingar fyrir magann (annað en að borða)?

» 1 hafa sagt sína skoðun

30.11.2006 13:48:41 / dagnir

Dagnir fer í ferðalag

Dagnir er farinn í sína próflegu sumarbústaðarferð til óbyggða Ísalands svo megi þið öll vel lifa og gangi ykkur vel í prófalestrinum.

» 2 hafa sagt sína skoðun

19.11.2006 21:55:50 / dagnir

Jólabjórssmakk, Kb vísó og yfirseta

Vísir að karlaklúbbi myndaðist á jólabjórssmakki á heimili Kisa síðastliðinn föstudag. Sigurvegari smakksins kom virkilega á óvart en það var X-mas Royal. Hann sló mun dýrari tegundum eins og viking og egils ref fyrir rass, síðan voru viking og tuborg mjög ofarlega á töflu alls staðar. Þetta smakk varð reyndar til þess að Hörkutólin í bekknum voru aðeins rjóðir í kinnum þegar gengið var inn í hvelfingar Kb-banka. Eftir stuttann og fyrirlestur og helling af drykku var síðan haldið niður á pravda og áfram runnu niður drykkirnir. Besta ákvörðun kvöldsins var tvímælalaust að drífa sig heim áður en ástandið yrði of slæmt og því var skakklappast í leigubíl.
Laugardagurinn einkenndist af minnisleysi og mikilli þynnku sem var betur fer að mestu liðin hjá þegar Dagnir vann sína fyrstu vakt í yfirsetu upp á hringbraut. Þegar haldið var heim á leið fjögur um nótt eftir vinnu var allt orðið hvítt, en þá kom Súperóinn til bjargar og meðan björgunarsveitin kom Nátthröfnum bæjarins til bjargar, þeystist Dagnir áfram eins og ekkert væri.
En Dagnir þakkar fyrir glæsilega vísindaferð og skemmtilegt bjórsmakk sem vonandi verður endurtekið einhvern tímann seinna.

» 2 hafa sagt sína skoðun

16.11.2006 20:30:05 / dagnir

Jafnrétti er undarlegur hlutur


http://mbl.is/mm/frettir/innlent/frett.html?nid=1235558

ok Dagnir hefur enga trú á öðru en þessi kona sé jafnhæf og gaurinn en ef hún hefði verið ráðinn en hann ekki, þá hafði þessi nefnd s.s. enga ástæðu nema kynferði, ergo hann hefði átt að geta kært. Svo sama hvort þeirra þeir hefðu ráðið hefðu þeir tapað, voðalega hlýtur að vera leiðinlegt að þurfa að standa í ráðningum.

Látum þau deila vinnunni, 50:50, vinna aðra hverja viku.

Nei, enn betra að fá "flip a coin" í svona málum, það eina leiðin til að útkljá þetta mál án lögsóknar.


Dagnir Salómon

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.11.2006 16:19:06 / dagnir

Höfn í hornafirði

Nú eru sorgartímar, Dagnir hefur verið aðskilinn og er seinni helmingurinn veðurtepptur í öðru tímabelti á Íslandi eða á Höfn í Hornafirði... Því skal bæta einni klukkustund við tímastimpillinn á þessari færslu. Ný könnun hefur verið tekin í gagnið...

Kv. Nir, veðurtepptur í óbyggðum

P.S. það er víst ekkert hægt að gera hér


» 0 hafa sagt sína skoðun

13.11.2006 11:20:33 / dagnir

MSN - gullkorn dagsins

Bryndís says:
    ég er ólétt
    ekki segja neinum að ég sé ólétt
    það er ennþá leyndó

Bryndís er betur þekkt sem Brynnka ludio

» 0 hafa sagt sína skoðun

08.11.2006 22:35:05 / dagnir

Ruglað saman reitum?

Er 1. og 2. árið loksins farin að rugla saman reitum??? Það er spurning, nýlega fékk Dagnir fréttir frá Dóru DNA þess eðlis að einhver annarsársstelpa og fyrstaársstrákur hafi talast við í bænum... ekki væri það nú frásögur færandi nema fyrir þær sakir að augngotur og rjóðir vangar (ásamt rauðu hári) sáust þegar parið hittist í stigagangi læknagarðs í vikunni og voru vitnin allavega tvö af þessu. Dagnir fór á stúfana og spurðist fyrir um þetta samband en lítið var um svör, eina sem heyrðist var að fröken annarsársnemi kunni vel að meta byssusýninguna, sem á víst að vera svakaleg!! Auðvitað eru þetta allt fréttir frá Dóru DNA svo að takið öllu með fyrirvara.

Dagnir skrifar frá Chile,
aðeins í bréfdúfusambandi, þangað til næst ...syanara


» 7 hafa sagt sína skoðun

06.11.2006 09:05:01 / dagnir

Kraftaverk

Tvö kraftaverk gerðust í dag... Dagnir mætti í skólann og bloggaði.

Dagnir hefur ákveðið að senda DagNi í stafsetninga og málfræðiskóla Mafíunnar vegna langtíma leiða á þekkingarleysi hans á því sviði. Greinilegt er að stafsetningakennsla í versló fór fram á tölvu og grunar Dagni að púki hafi verið staðalbúnaður.

Fótboltamót læknanema fór fram síðasta laugardag og þrátt fyrir herfylki 1.árs nema máttu þeir éta ofan í sig risastóru orðin um stórkostlegan sigur þar sem að þeir gerðu jafntefli gegn fámennu 2.árinu sem að samanstóð af: Dagni Schmeichel, Ösher Irwin, Á. Potter Pallister, Húnster Solskjaer, Hellisbúanum Gascoigne og Dagni Sammer. Að lokum fór það þannig að elstu karlarnir unnu mótið og voru vel að sigrinum komnir enda eina liðið sem gat sprengt upp staðfasta vörn 2.ársins.

liðið:

 

K.Y.N.H.V.Ö.T. fór fram á föstudaginn var og helst er að nefna að Pjatti var drukkinn og hann á klárlega setningu kvöldsins "Katrín, þú ert svo sæt *klípur í nefið á henni* koddu í sleik!" og svo hló hann dátt að eigin fyndni því að svipurinn á Katrínu Stóru var óborganlegur. Pjatti týndist seinna þetta kvöld sem og síminn hans og er hér lýst eftir hvoru tveggja. Vitni eru beðin um að gefa sig fram við Dagni eða senda tölvupóst á tyndurpjatti@hotmale.com


» 6 hafa sagt sína skoðun

21.10.2006 21:40:23 / dagnir

Vísindaferð í sóltún og smá bæjarskrall

Þrátt fyrir að hafa verið í seinni kantinum í vísó höfðu hinir elskulegu læknanemar skilið smá eftir af veigunum fyrir Dagni og föruneyti. Segja verður að þetta var hin veglegasta vísindaferð og ekki skrýtið að Sóltúns-fólk lokki til sín margan læknanemann.
Eftir að Harpa dagsins gerðist menningaleg og fór að hlusta á feita kellingu syngja, héldu fjölmargir læknanemar niður í bæ og dreifðu sér eins og kakkalakkar. Dagnir fór í Sirkús auk nokkurra ellismella en heitasta umræðuefni kvöldsins virtist vera pólitík(enda smeðjuleg andlit og innantóm loforð upp um alla veggi og vefi). Eftir nokkurn tíma sameinuðust svo læknanemarnir á Barnum og setið við drykkju nokkuð fram eftir.
Sérstakt var við þetta kvöld hvað dyraverðir voru duglegir við að spyra um skilríki en Dagnir sýndi bara skilríki Dagnis og allt fór vel(þrátt fyrir fótaskort á tungunni þegar spurt var um kennitölu).

» 3 hafa sagt sína skoðun

16.10.2006 10:02:57 / dagnir

Októberfest

Menn með mottu, konur með mottu, börn með mottu. Það eru allir með mottu á októberfest. Þar er einnig besti vinur þinn framreiddur freyðandi í stórri könnu. Sumir eignuðust marga vini þetta kvöld og sumir of marga sem leiddi til ruglings og ranghugmynda, allt í góðu gríni. Nemendur HÍ voru nefnilega skotmörk tilraunar sem gekk út á að gefa fullt af fólki óáfengan bjór undir því yfirskini að hann væri áfengur. Ótrúlegt en satt urðu samt allir vel drukknir og fundu engann mun en flestir féllu svo illilega í gildruna að það mældist meira að segja áfengi í blóðinu.
Þeir sem eru ósáttir við framkvæmdaraðila tilraunarinnar geta safnast fyrir framan Dúfnahóla 10 og hafið óeirðir, einnig er hægt að skrifa þeim póst og sent á dufnaholar10@hi.is.
Dagnir þakkar fyrir dagni. Verði ykkur að góðu.

» 2 hafa sagt sína skoðun

05.10.2006 09:19:00 / dagnir

Fylliraftar og símaþrjótar

Til að byrja með vill Dagnir lýsa furðu og vonbrigðum yfir lélegri þjónustu símafyrirtækja landsins og þá sérstaklega ,,fyrrverandi-okkar" frábæri Síminn en greinilegt er að blábjánarnir hafa gert okkur leiðindar grikk með sölunni og öll þjónusta þar hefur færst aftur á steinöld og dregur viðskiptahópinn með.(ekki það að þjónustan hafi verið góð áður). Hipp hipp húrra fyrir einkavæðinga trúðunum.
Að öðrum málum er loksins staðfest að flestir læknanemar séu alkahólistar þar sem allmargir djömmuðu fram á aðfaranótt miðvikudags, og eins og málshátturinn segir: ,,Enginn er alkahólisti fyrr en hann drekkur á þriðjudegi". Dagnir óskar ykkur öllum til hamingju með próflokinn og vonar að þið njótið nýfengins frelsis.
Einnig hefur orðið hreyfing á slúðurmálum þar sem heyrst hefur að ónefnd læknanemastúlka stundar mikið fjúddifjú inn á klósettum Danmerkur, og varð það til þess að hún sá sinn eiginn fullnægingarsvip og hefur síðan þá verið að æfa sig í að gera svipinn gáfulegri.

» 7 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4